Færsluflokkur: Bloggar

Blogg hvað er það hehe

Jæja hvað segir fólkið, núna er nú húsið að verða full klárað að innan. Það er verið að klára efri hæðina  og ætti hún að vera alveg búin eftir 2-3 vikur. Þá verður farið í það að klára hér niðri hjá mér. Ég er nú víst allarf að lofa að vera duglegri við það að blogga en næ engan vegin að standa við það :(

Ég ætla reyndar að setja myndir af öllu á næstunni, þannig að fólk sjái hvernig þetta lítur út nánast full klárað. 

Segi þetta gott núna Kveðja Íris 


Var að setja inn myndir

Setti inn nokkar myndir. Ég skildi ekkert í því afhverju myndirnar sem ég var að reyna að setja inn þarna fyrir löngu síðan komu aldrei, en þegar ég ætlaði svo að reyna aftur núna áðan þá tók ég eftir því að myndplássið var búið. Þannig að ég tók út nokkrar gamlar myndir og bætti inn nýrri, þær eru undir LOKSINS hehe.

Á mánudaginn verður steypt gólfið uppi á 2. hæð en ég get ekki sett myndir af því inn því við erum þá að fara út til tyrklands. Þegar við komum aftur heim ætla ég að taka eitthvað meira til í albúminu svo að ég geti svo sett þá fleiri nýjar myndir inn.

Ég veit að ég er ekki duglegasti bloggari í heimi en ég skal vera aðeins duglegri eftir að við komum heim 9 sept. því núna á næstunni er svoltið verið að vinna í 2. hæðinni svi að ég hef eitthvað að skrifa um og setja inn nýjar myndir.

Kveðja Íris letibloggari.


Myndir í kvöld

Jæja fengum netið síðasta laugardag. Í vikunni erum við búin að vera að rífa niður stillasann, lítið annað hefur verið að gerast. En ég ætla að skella inn nokkrum myndum í kvöld þegar ég er búin að vinna.

Fengum gardínur fyrir stofuna núna á miðvikudaginn, þannig að núna vantar aðalega parketið hjá mér þannig að þetta er allt að verða klárt.

Kveðja Íris


Vonandi net fljótlega

Jæja það er verið að vinna í því að tengja símana, mamma og pabbi eru búin að fá sinn síma tengdan og vonandi kemur minn í gagnið í dag eða morgun og þá skelli ég inn myndum um leið og allt er oðið tengt.

Núna er þriðja vikan að líða og líður okkur vel í kofanum. Hefur ekkert gerst þessa viku síðan ég skrifaði síðast en vonandi fer nú eitthvað að gerast á næstunni.

Erum að spá í að drífa í því að setja smá pall strax svo að við getum nú notað sumarið eitthvað úti í garði hjá okkur. Það verður sennilegast steypt plata og svo ætlum við að sjá til hvernig restin af pallinum verður þegar búið er að laga lóðina.

Kveðja Íris


Fljótt að líða

Góðan daginn

Núna erum við búin að vera í tvær vikur og líður tíminn fljótt. Við erum búin að selja straumsalina svo að núna getum við sett allt á fullt aftur í það að klára það sem eftir er. Við þurfum að losa það sem eftir er að dótinu okkar í straumsölum núna á næstu dögum og í byrjun júlí afhendum við svo nýju eigendunum íbúðina.

Múrararnir voru í gærkvöldi að klára að múra bakhliðina og núna er þá bara eftir hjá þeim að múra aðeins inní gluggana, reyndar búnir með slatta af þeim en einhverjir eftir. Það verður sennilegast klárað í næstu viku og þá er hægt að rífa niður stillasann sem er í kringum allt húsið. Þá verður þetta flott að geta séð allt húsið án þess að það skyggir eitthvað á.

Erum ekki ennþá komin með heimasíma eða nettengingu svo að myndirnar bíða ennþá.

Kveðja Íris


Vika

Þá erum við búin að vera viku í þrymsölum og er bara fínt að vera þar. Maður er reyndar vakin fyrir 8 á morgnana með gröfulátum þar sem verið er að grafa fyrir tveimur húsum í götunni og annað þeirra er við hliðiná okkkur.

Flísalagningamaðurinn er búinn að flísaleggja veggina á litlabaðinu sem er með forstofuherberginu og í dag fer hann í að flísaleggja gólfið þar og gólfið á forstofunni hjá mömmu og pabba.

Það er búið að setja upp örbylgjuloftnet svo að við erum komin með sjónvarp og eigum við von á manni frá símanum einhver tíman á næstu dögum svo að vonandi kemst heimasíminn og netið í gagnið í næstu viku. Þanngað til get ég ekki sett inn myndir.

Það mjakast allt bara hægt og rólega áfram með húsið þessa dagana svo að  ég hef nú ekki frá miklu að segja

 Kveðja Íris


Flutt

Jæja við fluttum 30. maí og sváfum þá fyrstu nóttina ;)

Allt er búið að ganga þokkalega og um helgina voru múrararnri á fullu að múra húsið ogeru þeir langt komnir. Við erum búin að ganga frá fullt af dóti en eitthvað samt eftir.

Ég get ekki sett inn myndir þar sem ég er í vinnunni og það er búið að aftengja netið í straumsölum og ekkert net í þrymsölum. Við erum heimasímalaus, netlaus og sjónavarpslaus í þrymsölum og verðum það í einhverja daga til viðbótar.

 Kveðja Íris


Myndir

Skellti inn nokkrum myndum í ýmislegt maí albúm. Í dag komu menn og byrjuðu á þakinu, það fer tjörupappi á þakið. Rafvirkinn er búinn að skella upp ljósum í stofunni og er flísarinn búinn með veggina á baðinu. Á morgun fer hann svo í það að flísaleggja gólfið á baðinu, þvottahúsinu og eldhúsinu.

Setti líka inn mynd af Gutta ;)

Kveðja Íris


myndir á morgun

Ég get ekki sett inn myndir í kvöld svo að ég skelli þeim inn á morgun


Styttist óðum

Jæja þá eru bara 4 dagar í flutning. Það er nú margt búið. Málarinn klárar sennilega í dag eða á morgun að mála allt, flísarinn er langt kominn með baðið mitt og múrarirnir eru búnir að setja fyrstu umferð af múr á húsið og á eina hlið eru þeir búnir að setja seinni umferðina á. Þær ætla svo að mæta í kvöld og halda áfram. Rafvirkinn er langt kominn með að setja tengla og svoleiðis.

Ég og mamma erum búnar að vera að týna dót upp í hús og aðeins byrjaðar að raða í skápa. Straumsalirnir eru að verða hálf tómir. Á morgun reiknum við með því að fara með rúmið hans Orra Páls og ætla ég að reyna að koma hans dóti fyrir svo að það verði búið.

Nýjasti meðlimur fjölskyldunar kom á laugardaginn og lýst honum bara vel á herlegheitin. Hann er búinn að skoða húsið vel ;) Hann heitir Gutti og er tæplega 3 mánaða Beagle hundur.

Er í vinnunni núna svo að ég skelli inn myndum í kvöld.

Kveðja Íris


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband